3-13 mínútur er máliđ

Man mannskapurinn eftir frétt sem var efnislega á ţá leiđ ađ kynlíf vćri best lukkađ ef ţađ stćđi í 3 til 13 mínútur? Ég varđ einhverra hluta vegna hugsi yfir ţessari frétt á morgungöngunni. 3 mínútur er "Bláu augun ţín" í fullri lengd međ glissinu hjá Jensen í lokin. 13 mínútur er sá tími sem tekur mig ađ hita frosiđ brauđ í ofni, nota bene án ţessa hvítlaukssmjörlíkis sem er ógeđslegt. Ég er innan viđ 13 mínútur ađ ganga heiman frá mér og uppá Klambratún í góđu sumarfćri.

Reyndar fylgdi fréttinni ađ ţessi tími innihéldi ekki "forleik" og heldur ekki hin ţokukennda "eftirleik". Ţessar ídeölu 3-13 mínútur eru hreint og klárt samfaraatriđi, hankípankí, innogút. Ţetta var ađ mig minnir niđurstađa 50 sérfrćđinga í kynhegđun mannapans.

Ţegar allt er reiknađ međ, forleikur, hankípankí og eftirleikur, ţá sé ég ađ ţetta er uţb passlegt. Ţetta er eins og göngutúr í vinnuna, ca 35 mínútur, nema miklu skemmtilegra. Ég tek ţađ strax fram ađ ég er mikill unnandi afmors ljúfu lista, finnst ţćr ólíkt meira gefandi en tam eróbikk, skokk eđa skjalaflokkun. Samfarir eru frábćr endir á sjónvarpsglápi, skraflspili og rúsínan í pylsuendanum eftir hressandi rifrildi. Ég myndi aldrei fara út ađ hlaupa eftir 10 fréttir Sjónvarpsins svo lítiđ dćmi sé tekiđ. Ţađ gera bara asexual nördar.

Niđurstađa ţessarar rannsóknar kynfrćđinganna fćrđi mér friđ. Ég hef eiginlega aldrei trúađ ţessu almennilega ţegar menn segja mér ađ ţeir hafi "veriđ ađ alla nóttina". Hvernig getur fólk eytt heilli nótt í svo endurtekningasamt athćfi eins og sex? Hjakkađ í 8 klukkustundir eins og einhverfar spćtur? Ţađ vćri álíka mikiđ stuđ eins og ađ horfa á málningu ţorna, eđa fylgjast međ tánöglum vaxa.

3-13 mínútur er máliđ.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband